Um Prince Polo
Flestir, ef ekki allir, Íslendingar þekkja Prince Polo. Ásbjörn Ólafsson ehf. hefur flutt súkkulaðið inn í u.þ.b. 55 ár eða frá því það kom fyrst á íslenskan markað.
Prince Polo er súkkulaðihúðað fjögura laga kex með þriggja laga súkkulaðifyllingu. Það má auðveldlega þekkja það af gylltu umbúðunum. Auk venjulegs Prince Polo (39 gr.) er hægt að fá súkkulaðið í öðrum stærðum, XXL (52 gr.), lítið (20 gr.) og 22 bita í kassa (samtals 154 gr.). Prince Polo er markaðsleiðandi vörumerki á Íslandi og hefur, samkvæmt Nielsen mælingum, verið mest selda súkkulaðið á Íslandi í áratugi. Til að halda stöðu sinni á markaðnum eru næstum allir miðlar, t.d. sjónvarp, tímarit, dagblöð, útvarp og útiskilti, notaðir til að auglýsa súkkulaðið. Prince Polo var kynnt til sögunnar af fyrirtækinu Olza SA í pólska bænum Cieszyn snemma á fimmta áratugnum. Það hefur verið söluhátt vörumerki í Pólandi í mörg ár. Í Tékklandi, Slóvakíu og Ungverjalandi er súkkulaðið selt undir nafninu Siesta. Árið 1993 keypti Kraft Jacobs Suchard, næst stærsta matvælafyrirtækið í heiminum, fyrirtækið Olza SA. Árið 1995 var Prince Polo sett í nýjar umbúðir með nýju kennimerki. Fyrir breytingarnar hafði innihald súkkulaðsins og umbúðirnar verið þær sömu frá upphafi. Nú í stað þess að vera pakkað í pappírsumbúðir er því pakkað í plastumbúðir. Mörgum Íslendingum fannst Prince Polo missa sitt „sanna bragð“ eftir breytingarnar. En í raun loka nýju umbúðirnar súkkulaðinu mun betur en eldri umbúðirnar gerðu þannig að það er ferskara. Í kringum 1952 var Ísland á marga vegu mjög einangrað. Vegna skorts á erlendu gjaldeyri voru verulegar hömlur á innflutningi vara. Tvíhliða samningur var á milli pólska og íslenska ríkisins og var því leyfilegt að flytja Prince Polo til landsins. Í mörg ár var það því nánast eina súkkulaðistykkið á markaðnum. Þess vegna hefur stór meirihluti Íslendinga prófað Prince Polo og hafa margir mjög sterkar skoðanir á því. Prince Polo varð og er mjög vinsælt enn þann dag í dag og er orðið mjög „íslenskt“ vörumerki þó það sé innflutt. Staða Prince Polo á Íslandi varð einstök og má líkja við stöðu Coca-Cola í Bandaríkjunum. Það mætti einmitt kalla Prince Polo og Coke nokkurs konar þjóðarrétt Íslendinga því það er oft sem fólk gæðir sér á þessum tveimur vörum á sama tíma. Prince Polo er það vinsælt á Íslandi að það var einu sinni samið um það lag, sem varð frekar vinsælt.
Um Ásbjörn Ólafsson ehf.
Fyrirtækið Ásbjörn Ólafsson ehf. var stofnað þann 25. september árið 1937 af stórkaupmanninum Ásbirni Ólafssyni. Starfsemin hefur verið breytileg í gegnum árin en í dag er áherslan lögð á innflutning, dreifingu og markaðssetningu á: matvörum, sælgæti, gjafavörum, búsáhöldum, bílavörum og fleiru. Fyrirtækið er með umboð fyrir mörg af þekktustu vörumerkjum í heimi og er einn af stærstu innflytjendum landsins, á sínu sviði.
Síðan fyrirtækið var stofnað hefur það verið í eigu sömu fjölskyldunnar og er í dag í eigu barnabarna stofnandans. Um 40 manns starfa hjá fyrirtækinu.
Ásbjörn Ólafsson ehf. er staðsett á Köllunarklettsvegi 6, 104 Reykjavík.
Opnunartími alla virka daga er frá 08:00 til 17:00
